|
Dagsetning
10. febrúar 2012
|
23.11.2006 12:11:07 / mundi
Jæja, þá er ég hættur með þessa síðu, og ég mun ekki byrja með hana
aftur..
En eftir nokkra daga, þá munum við Axel opna allsvakalega síðu sem
mun verða töluvert betri en þessi og saur.bloggar.is..
»
13.10.2006 18:23:40 / mundi
Jæja, þá er kominn tími á eina færslu eða svo..
Á laugardaginn í síðustu viku þá fór ég í leikhús með Gerði og Olgu
frænku hennar.
Við fórum að sjá söngleikinn Footlose..
Þetta var bara mjög skemmtilegt leikrit, maður hafði heyrt misjafna
dóma um það
en ég skemmti mér vel.
Eftir leikritið fór ég í skemmtilegasta party sem ég hef á ævinni
minni farið í og það verður seint toppað.
Ég nenni ekki að fara út í öll smáatriðin en ég var edrú eins og
oft áður..
Á sunnudaginn þá fór ég að skoða íbúðina hans Arnars, hann var víst
að leigja íbúð með tveimur félögum hans, þetta er eitt mesta greni
sem ég hef séð..bjórtappar og smokkatappar út um allt..og meira að
segja pillubox..
þessi vika sem er að liða er ekkert frásögufærandi..var mest að
vinna.
nema í gær, þá fórum við Sævar á Rizzo og fengum okkur að borða,
svo eftir það þá fórum við í Smáral.
Sævar ætlaði að hitta Hugrúnu kærustuna sína og vinkonu hennar..þar
vorum við bara á röltinu..
Ég fékk að frétta það í dag að á mánudaginn þá mun Pólverji koma og
vinna á sama stað og ég..
það verður fróðlegt að sjá hvernig hann vinnur..og ef hann talar
ekki íslensku og slæma ensku, þá mun ég senda hann aftur heim..
Jæja, það er voðalítið sem mér dettur í hug að bæta við þetta..
Þannig að ég ætla bara að kveðja að sinni..
Bless
»
23.09.2006 12:54:30 / mundi
Gaman að sjá hvað margir skoða þessa síðu oft á dag, þótt að ég
hafi ekki bloggað í smá tíma og ótíma..
En ég ætlaði bara að prófa þetta aðeins aftur..
Hvað er málið með veðrið, maður veit ekkert hvort að sumarið sé
búið og haustið komið..
Ég var allavegana að vinna úti í þessari viku, og maður fór að
verða soldið hræddur um að brenna..
Fyrir ári síðan þá var allt á kafi í snjó, en núna er liggur við
met hiti í sumar/haust
Í þessari viku þá munaði litlu að ég hafi slasast allsvakalega í
vinnunni.
Ég var að vinna í stiga, var að mála vegg, en svo kemur einn maður
og fer eitthvað að tala við mig, og ég heyri ekkert hvað hann er að
segja, þannig að ég sný mér við, og þá vildi svo skemmtilega til að
ég missti jafnvægið úr stiganum, og datt næstum því niður á bakið
úr fjagra metra hæð..en ég náði einhvernveginn að bjarga mér með
því að grípa í aftur stigann í fallinu, en gaurinn sem sá þetta dó
úr hlátri..
Ég fatta þetta ekki, hvað er svona fyndið við að sjá svona óhöpp,
eða sjá aðra slasast?
Það sama gerðist seinasta laugard.(16.sept.) þá var ég í domino's
party-i..og það var alveg rosa gaman þar, nema að
aðstoðarverslunarstjórinn í spönginni barði mig með einhverju
priki, og ég fekk æsispennandi glóðurauga..henni fannst þetta alveg
rosalega fyndið þegar ég helt um augað, og öllum finnst alveg
rosalega fyndið að sjá mann með glóðurauga..
Þið sem hlægið af þessu eruð með leiðinlegann húmor..
En nóg um þetta..
Ég var að kaupa mér bíl, Deiwoo Nubira, mjög fínn bíll..nenni ekki
að skrifa allt um þennan bíl..þið verðið bara að koma í heimsókn ef
þið viljið sjá gripinn..
Næsta sunnudag, þá gerist soldið rosalegt, ekki nóg með það að þá
verða 3 mánuðir til jóla, en hún Gerður á afmæli þennan dag, og
verður hún 18ára gömul, við öll óskum henni að auðvitað til
hamingju með það  .
Jæja, fyrsta bloggið mitt er þá komið..og við sjáum bara til hvenær
næsta kemur..
Kv. Guðmundur Rangar
»
02.03.2006 10:14:51 / mundi
Heyrðu, jæja ég skal koma með blogg.
Í dag eru Öðruvísi dagar í skólanum, þeir voru í
gær og eru svo aftur í dag.
Þessir öðrivísi dagar eru voða tilgangslausir, þetta eiga að vera
voða skemmtilegir dagar, en eru í raun ekkert skemmtilegir.
Ég mætti í gær, ásamt öllum hinum strákunum sem eru að læra málun
og við fórum að skoða nokkur hús í bænum og kennarinn var að segja
okkur hvernig húsin voru máluð í gamla daga.
Það var samt alveg fínt, þannig að ég veit ekki alveg hvað ég er að
kvarta  .
En heyrðu, í gær þá var stæ. kennarinn minn að
reyna að fá mig í einhverja stæ.keppni, það kom mér persónulega
mjög svo á óvart, því að stæ. hefur aldrei verið mín sterkasta
hlið.
En þar sem ég er to cool for school, þá sagði ég henni að láta mig
í friði og ekki vera með svona rugl.
Árshátíðin Iðnskóla Rvk. verður í kvöld, ég helt
samt að árshátíðin væri bara þjóðsaga..
Ég heyrði í einum kennaranum tala um að halda árshátíðina með
Iðnskólanum í Hafnaf.
því að ef við gerum það, þá náum við að smala saman svona
200krökkum, miðað við að aðrir skólar ná að smala saman 500 - 600
krökkum á böllin sín.
Á þriðjudaginn, þá tókst Íslenska landsliðinu í
fótbolta að tapa fyrir Trinidag & Tobago.
Eins og áður, þá voru allir að tala um að við mundum vinna þennan
leik, en við töpuðum, og við töpuðum með tveimur mörkum..og náðum
ekki einu sinni að skora eitt mark..
Ég beið alveg frekar lengi yfir sjónvarpinu eftir þessum leik og
svo sá ég þennan hrylling.
Það er eitt sem fer alveg frekar mikið í
taugarnar á mér með þessar blog.central.is síður, það er að ef
maður er of lengi að blogga, og gleymir að save-a textann, þá
hverfur hann bara þegar maður fer í staðfesta.
Hvað er eiginlega málið með það, þetta fer held ég í taugarnar á
öllum sem eru með svona skemmtilegar síður.
Ég ætla samt að hætta þessu núna.
Bæjó
»
17.02.2006 23:15:59 / mundi
Jæja..er ég gjörsamlega dauður, Gerður er sú eina sem nennir að
lesa bloggið mitt..og skilja eftir sig nokkur velvalin orð..
En hvað um það..ég vil að þið sem komið á þessa síðu svarið þessari
skemmtilegum spurningum..
1. Hver er þú?
2. Erum við vinir?
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?
4. Ertu hrifin(n) af mér?
5. Langar þig að kyssa mig?
6. Láttu mig hafa gælunafn, og útskýrðu afhverju þú valdir það
7. Lýstu mér í einu orði
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
9. Lýst þér ennþá þannig á mig?
10. Hvað minnir þig á mig?
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað, hvað mundi það vera?
12. Hversu vel þekkiru mig?
13. Hvenær sástu mig síðast?
14. Hefur þig einhvern tíman langað til þess að segja mér eitthvað
en ekki getað það?
15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt, svo ég geti skrifað um
þig?
Svarið þessu elskurnar mínar..
Bæjó
»
30.01.2006 20:22:03 / mundi
Jæja, ég held að það sé kominn tími á eitt stykki blogg..
Þó það sé soldið langt síðan að ég bloggaði seinast, þá er ekkert
neitt rosalega mikið búið að gerast..
Ég er allavegana byrjaður að vinna hjá Domino's, og það er alveg
fínt, hefði ekkert á móti því að vinna aðeins oftar en bara tvisvar
í viku, og það þá um helgarnar, og þá oftast bara 5tíma, það er
alveg frekar ömurlegt..
En fyrstu tveir dagarnir byrjuðu ekkert sérstaklega skemmtilega,
þar sem ég var eiginlega bara í því að setja pantanirnar á
pizzukassana, og eins og venjulega, þá er alveg brjálað að gera á
föstudögum, og þá fór blessaði prentarinn sem prentar á límmiðana
að æla út úr sér miðum..
En núna er ég svona aðeins byrjaðu að gera pizzurnar, þeas. setja
áleggin á og henda þeim í ofninn, og það er alveg fínt,
skemmtilegra en að líma á kassana..
En heyrðu, í gær, semsagt sunnudaginn 29.janúar, fyrir þá sem ekki
fatta hvaða dag ég er að tala um, þá fórum við Gerður í bíó, og
sáum myndina Munich..
Og ef einhver er að tala um að Titanic hafi verið langdregin, þá er
hún eiginlega ekkert miðað við þessa mynd, þessi mynd er svo löng,
og svo leiðinleg að ég var eiginlega hættur að fatta þessa
mynd..
En já, ég nenni eiginlega ekki að skrifa neitt mikið meira en
þetta,
þannig að ég kveð í bili..
»
13.01.2006 10:43:34 / mundi
Guð minn almáttugur hvað strætóar geta böggað mann mikið.
þeir koma oft á seint og oftast eru strætóbílstjórarnir
hundleiðinlegir og bögga mann ekkert smá mikið, það er ekki hægt að
spurja þá spurninga, því þeir þurfa alltaf að svara með einhverjum
leiðindum. Ég veit ekki um ykkur en þetta fer ekkert smá í
taugarnar á mér.
Og hvað er málið með þetta nýja strætókerfi, það er bara
böggandi.
Eins og t.d. í morgun þá ætlaði ég að fara í skólann, ég þurfti að
taka strætó því ég fekk frí í fyrstu tveimur tímunum, og gat þá
ekki farið með pabba.
En allavegana, strætóinn á að koma 09:16, þannig að ég fer út 09:10
og er kominn að strætósk. 09:12.
Jæja, þá er ennþá smástund í það að hann á að koma, þannig að ég
bíð bara þarna úti, og það var ekkert smá kalt úti, og svo snjóaði
og læti.
En svo þegar klukkan er 09:16, þá er hann ekki enn kominn þannig að
ég held að það sé bara smá töf og bíð aðeins lengur.
En svo þegar klukkan er orðin 09:26 þá er hann ekki enn kominn, og
þá hefur hann bara sleppt því að koma eða eitthvað. Þannig að ég
hljóp bara aftur inn, og komst ekki í íslenskuna útaf þessum
blessaða strætó.
En annars þá er ég bara byrjaður á fullu í skólanum, og ekki
byrjaði það nú vel.
Það byrjaði allt með því að ég og Gerður fórum í iðnskólann í rvk.
til að ná í stundatöfluna mína, en nei það var nú ekki alveg hægt
því að pabbi tók upp á því að vera ekki búinn að borga
skólagjöldin, samt var ég búinn að fá bréf um að það væri
búið..
En eftir nokkur símtöl þá komst ég að því að það var ekki búið að
borga.
En svo á mánudaginn þá fekk ég loksins stundatöfluna og allt í góðu
með það,
nema að það vantaði alveg tvö fög á stundatöfluna mína, og þegar ég
og umsjónakennarinn minn ætluðum að reyna að troða þeim inn í
stundatöfluna mína (ég er nefnilega með helling af eyðum) þá
stangaðist þeir tímar alltaf á aðra tíma sem ég á að vera í..
Þannig að ég er ekki enn kominn með stundatöflu, sem er alveg
frekar böggandi.
En núna er ég kominn með nýja vinnu, ég er farinn að vinna sem
bakari á Domino's uppá Höfða, sem er bara kúl. því þá fæ ég pening
og fyrst þá get ég keypt mér bíl, og þá losna ég við þessa
strætóa..
En ég ætla ekki að hafa þetta lengra hjá mér í dag.
Bæjó
»
31.12.2005 17:06:56 / mundi
Jæja, núna er maður loksins kominn heim, eftir hæðilegt
ferðalag..
það gjörsamlega tafðist allt.
Lestin tafðist svo mikið að maður var orðinn hálf hræddur að ná
ekki fluginu..
en svo tafðist flugið líka sem var hryllingur..
Við þurftum nefnilega að vera í 2tíma í flugvélinni áður en hún fór
í loftið, þannig að ferðin heim var eiginlega bara helmingi lengri
en hún átti að vera..
En hvað um það, núna í kvöld eru áramótin
Og þá eins og flestir vita, þá endar árið og nýtt ár kemur..
Áramótin hjá mér þetta árið verða soldið öðruvísi.
Það er nefnilega þannig að ég og Arnar erum ekkert búnir að opna
allar jólagjafirnar því við vorum jú í dk.
Þannig að núna förum við í matarboð til ömmu og afa, fáum okkur
eitthvað gott í gogginn þar, opnum svo restina af pökkunum, og svo
bíðum við bara eftir áramótunum.
Í kvöld stefni ég á það að fara á áramótaball á Broadway með Gerði
og vinkonum hennar, vonandi verður það bara stuð.
En ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra í bili, og vonandi
hafiði það gott í kvöld..
Bæjó.
»
29.12.2005 08:52:50 / mundi
Jæja, þá er bara komið af seinasta deginum í dk..
Ég verð að viðurkenna það að ég var ekki alveg eins duglegur og ég
ætlaði mér með bloggritvinnsluna..
Dagurinn í dag fer eiginlega bara í ferðalag, það byrjar allt með
því að við Arnar þuftum að fara í lest til Köben klukkan eitt (held
ég) og það tekur ca. 3tíma fyrir lestina að fara frá Århus til
Köben..
Eftir það þá þurfum við að bíða á Kastrup í nokkra tíma, því flugið
er ekki fyrr en klukkan átta að ég held..
Flugið sjálft tekur rúma 3 tíma..og þegar við loksins lendum á
íslandi, þá þarf maður að keyra í bæinn, og það tekur ca
40mín..
Semsagt ég verð ekkert kominn heim fyrr en um miðnætti..
En svo þegar ég er kominn heim, þá kemur bara í ljós hvort ég haldi
áfram að blogga..
Ég ætla ekkert að hafa þetta lengra í bili, og ég vona að allir
hafa það gott um áramótin..og vonandi geriði enga vitleysu, eins og
að brenna ykkur og svoleiðis..
Jæja, ég kveð að sinni, og það í seinasta skiptið í Dk. allavegana
í bili
»
24.12.2005 00:56:10 / mundi
Jæja, Í dag var þorláksmessa, sem er geðveikt. Ég er samt ekki enn
kominn í neitt jólastuð..vonandi kemur það nú á morgun..
En þessi dagur byrjaði hræðilega..
Arnar gleymdi að hlaða símann sinn um nóttina, þannig að hann fór
að koma með þetta ógeðslega hljóð á 10mín fresti..og þegar ég var
við það að springa þá tók ég upp á því að fara fram..
Og þegar ég kom fram, þá fekk ég að heyra soldið hræðilegt..(ég tek
það fram, þeir sem eru viðkvæmir, ættu ekki að lesa þetta)..
Mamma sagði mér að hún rakst eitthvað harkalega í eitthvað jarn með
brjóstið sitt..að geirvartan á henni rifnaði næstum af..Eða það
sagði hún allavegana..Frekar ósmekklegt það allt..
En í dag var ég víst búinn að lofa Gísla að fara með honum að mála
nýju íbúðina, en ég var ekki alveg að nenna því, og fór í staðinn
með mömmu, Christiani og Arnari í búðir..að leita af jólagjöfum
handa okkur..
ég fann mér eina peysu sem ég fæ frá mömmu Gísla..hún er alveg
pinku töff..
En svo fann ég mér tvo flotta boli sem ég keypti mér í Jack and
Jones..
eftir það var lítið gert en að rölta um og skoða..
Þegar við komum heim, þá fór Arnar á netið og Christian í Tekken 5,
og þá hafði ég sáralítið að gera..þannig ég tók bara uppá því að
fara að sofa..og ég svaf þar til ég fekk eitt stykki sms frá
Gerði..en þá fór ég aðeins að spjalla við hana..
Um kvöldið var eiginlega ekkert gert..það voru bara allir voða
rólegir eitthvað..
En heyrðu, á morgun er aðfangadagur jóla..það er kænd of
mega...
eins og flest allir vita, þá fær maður oftast mjög gott að
borða..og svo í flest öllum tilvikum, þá fara allir að opna marga
pakka..
Þannig að...ekkert blogg á morgun..en hverjum er ekki skítsama um
það..hmm
En núna ætla ég bara að kveðja, og óska öllum gleðilegra jóla..og
vonandi hafiði það bara sem best á morgun, og komandi daga..reynið
að lifa án mín, þar sem ég er fangi danadrottningar...allavegana í
augnablikinu..
Bæjó!..
»
23.12.2005 01:12:56 / mundi
Dagurinn í dag byrjaði ekkert skemmtilega útaf því að hann Arnar
bróðir minn tók upp á því að halda mér vakandi til klukkan fimm, en
þá einmitt tókst mér að ignora þann dreng og sofna.
En það lifði ekkert lengi því þegar klukkan var að ganga níu, þá
ákvað Arnar að fara að sofa..og þá einmitt tók hann upp á því að
vekja mig..ég lá í smá stund andvaka í rúminu, en sofnaði fljótt
aftur..
Svo vaknaði ég klukkan eitt, og hugsaði að núna væri fínt að koma
sér á fætur..
Í dag átti mamma afmæli..ég og Arnar gáfum henni sólóplötunum með
Bergsveini, og hann er bara nokkuð góður..
Christian gaf henni annan disk en ég er ekki alveg með á hreinu með
hverjum..
Í morgunmat fekk ég mér mest ógeðslegasta mat í
heimi..Mc.donalds..
ég fatta ekki alveg afhverju ég fæ mér þennan mat ef hann er svona
virkilega ógeðslegur..
En svo eftir þennan dýrindismorgunmat þá fórum við bræðurnir aðeins
að skoða í nokkrar búðir..og það endaði allt með því að Christian
keypti sér annann tölvuleik..og Arnar aðra dvdmynd, en ég ekki
neitt..
Núna erum við búnir að stunda Tekken 5 leikinn sem Christian keypti
sér að kappi..og ég held sveimér þá að ég sé lélegastur í honum
okkur þremur..það sökkar..
En já í dag er víst þórláksmessa, og ég hefði svosem ekkert á móti
því að vera á Íslandi í dag, og fara í bæinn um kvöldið..
En ég verð bara að sætta mig við danmörk..
Núna er ég að pæla í því að hætta þessu rugli og fara að spila Fifa
06...
Bæjó.
»
21.12.2005 18:32:15 / mundi
Jæja, Í dag komst ég að því að danir skreyta ekki neitt yfir jólin,
eða þeir skreyta bara smá heima hjá sér..en það er voða lítið
skreytt í gluggunum og svona..en svo setja sumir jólatré út á
svalirnar sína, og skreyta það ekki neitt..hvað er málið með
það?!?!
Í dag fórum við bræðurnir í bæinn, sem var fínt..og þar var meira
segja smá skreytt..ekkert mikið..sem er rugl..
Á jólunum á að vera skreytt alveg heilann helling, og hafa
snjó...ég efast um að það verði hjá mér þessi jól..
En hvað um það..ég var sá eini af bræðrunum sem keypti ekki neitt í
dag..
Arnar keypti held ég sex dvd myndir og hann Christian einn
tölvuleik..
Heyrðu..þeir sem koma á þessa síðu mega alveg gefa mér
jólagjöf..það yrði magnað..
Ég er að pæla í því að hafa þetta ekkert mikið lengra í bili..
Veriði sæl..
»
20.12.2005 23:41:15 / mundi
Í dag komst ég að því að danir séu soldið skrýtnir..
þeir sækjast soldið mikið í þrjú bíó..ekki veit ég afhverju, en það
er svosem allt í lagi, ég og Arnar skelltum okkur reyndar líka í
þrjúbíó, og sáum myndina King Kong.
Þessi mynd var soldið kaflaskipt frá því að vera langdergin og bara
mjög góð og spennandi..
Hvernig er hægt að gera spennandi myndir sem maður veit hvernig
enda áður en maður sér þær..tökum dæmi..Passion of the
Christ, Titanic og svo auðvitað King Kong..
En allavegana, þá var ég alveg að fýla King Kong...þeas. ég var að
fýla þessa mynd eftir hlé-ið, því fyrir hlé-ið þá var hún soldið
langdregin, og hún var alveg frekar lengi að byrja..
En þessi mynd er alveg vel flott og magnaðslega vel gerð..svona
eins og allar myndirnar hans Peter Jackson..sem hefur meðal annars
gert myndir á borð við Lord of the Rings trílogíuna, og Braindead
og Bad Taste..
En þegar við komum heim eftir myndina, þá var Christian kominn til
okkar..sem er bara fínt..
Jæja, ég veit ekki alveg hvað ég get sagt ykkur meira..
þannig að ég kveð..
Bæjó
»
19.12.2005 23:45:12 / mundi
Jæja, það er ágætt að engin hefur trú á mér með þessa blessuðu
bloggsíðu.
En þá er ég aðalega að tala um hana Elleni.
En þetta er allt í góðu, því að ég veit ekkert hvort ég eigi eftir
að halda áfram að blogga þegar ég kem heim frá dk. en hver
veit..
En já ég veit ekki alveg hvað ég áð segja hérna..þar sem að það var
ekkert mikið gert hérna í danaveldi.
En ég skal reyna að bulla eitthvað smotterí.
Heyrðu!, þessi ferð hingað til Danaveldis byrjaði ekkert
skemmtilega..
sko, ég þegar ég var að koma hingað þá var ég með nokkra pakka í
töskunni sem ég átti eftir að pakka inn, og þegar ég kom heim, þá
ætlaði ég að vera mjög sniðugur og henda öllum pökkunum inn í eina
skúffunua..
En sú snilldarhugmynd lifði ekki lengi, því að mamma var mjög snögg
að opna þessa skúffu, og sá allar gjafirnar, en hún sagði samt að
hún hafi ekki séð neitt, spurning hvort það sé ekki bara bölvað
kjaftæði..
Heyrðu, þegar mamma var farin að elda matinn, þá kom Gísli inn og
ætlaði að ná í eitthvað, sem hann geymdi víst í þessari skúffu, og
hann opnaði hana og hann sá líka allar gjafirnar..
Frekar pirrandi það allt saman..
En á morgun þá ætlum við Arnar í þrjú bíó að sjá stórmyndina King
Kong.
Fólk er eflaust að velta því fyrir sér Afhverju klukkan
þrjú?!..
En jú það er einfaldlega útaf því að við viljum ná kvöldmatnum..og
við ætlum að vera heima um kvöldið því þá kemur elskulega stóri
bróðir okkar hann Christian.
En núna er ég að fara að spila Meistari Völundarhúsins með honum
Arnari..
En fyrst ætla ég að fara að æla, því að ég sá undir stórunögglina
hans Arnars..
ég bið að heilsa öllum sem koma inn á þessa síðu..
Bæjó!
»
18.12.2005 18:02:37 / mundi
jæja, hvað segiði um eitt stykki blogg..
Núna er ég staddur í Danaveldi, með honum bróður mínum honum
Arnari, en á þriðjudaginn þá kemur hinn bróðir minn hann Christian,
vonandi verður það bara stuð.
En já, við verðum staddir hérna yfir jólin, en komum aftur fyrir
áramótin, því hver vill halda áramótin í Danaveldi..allavegana ekki
ég..
Ég veit ekkert hvort ég eigi að segja ykkur frá flugferðinni, því
þið þekkið sennilegast öll svona
flugferðir..
Farið í fríhöfn - út í flugvél - tekið á loft - sofnað - vaknað og
fengið sér að borða - sofnað aftur - vaknað svo aftur þegar vélin
lendir.
En svo mun ég sennilegast segja ykkur hvað mun gerast í okkar
lífi í Danmörku, í komandi
bloggum..
Vonandi eigi þið eftir að lesa þetta.
Veriði blessuð
»
Síður: 1 2 3 4
|
|